|
06.07.2007 12:22:44 / Þórir #259
já ég komst loksins á pall síðustu helgi í ólafsvík, var annar í
Mx2 aðeins erfiðari meistarflokkurinn heldur en 125 í fyrra þá fékk
maður sléttari brautir og sona en þetta er alvöru þarf bara koma
mér í betra form svo er æfingar keppni í sólbrekku á morgun

»
11.06.2007 17:22:54 / Þórir #259
Fyrsta umferðin í motocross fór fram um helgina ég stóð mig nú ekki
nógu vel endaði 14-i, en get nú bara kennt sjálfum mér um lélegt
form en þetta vakti mann aðeins nú er maður heldur betur byrjaður
að taka á því sund á morgnana synt og skellt sér í gufu og hjólað
svo á kvöldin... maður kemst reyndar ekki í kvöld þarf að taka
hjólið í gegn í kvöld...
»
17.05.2007 23:05:20 / Þórir #259
var aldeilis kominn tími á nýtt blogg... fórum á krókin ég
mikki og maggi ásamt þar var HondaRacing hittingur og nýlöguð braut
handa okkur við hjóluðum allan laugardaginn bombuðum svo bara heim
um nóttina vorum svo þreyttir búinn að setja inn myndir

»
07.04.2007 10:38:20 / Þórir #259
já ég er bara búinn að skella mér þrisvar í sólbrekku í vikunni fór
í gær byrjaði klukkutíma á hjólinu hans mikka(crf450) fór svo yfir
á mitt og hjólaði 1.5 klst á mæli! hellað og gaman er bara alveg
búinn á því í líkamanum ætla bara fara skella mér í sund ná mér
góðum fyrir morgun daginn, var búinn að gleyma hvað sólbrekka er
skemmtileg hún er selfoss eru í miklu uppáhaldi hjá mér  bróðir
hans gylfa slasaði sig í gær þegar hann reyndi að stökkva freestyle
rampinn, var reyndar óheppinn en það er í stökkum sem menn eru að
slasa sig þannig það er best að fara varlega útí það...
»
24.03.2007 12:15:12 / Þórir #259
Þá er Rc kallinn bara búinn að kveðja supercrossið án efa
uppáhaldkeyrarinn minn =]

»
18.03.2007 23:00:54 / Þórir #259
já veðrið hérna heima er ekki alveg að gera sig þessa daganna fór
aðeins á trialið á fös keypti mér GasGas 300 TXT Pro, jói og binni
voru að leika sér á crf100 í bílkjallara niðrí borgartúni mætti með
trialið þetta var stuð en svo var bara snjór á laugardaginn og í
dag var kolvitlaust veður þannig maður er bara búinn að vera græja
og gera í skúrnum svo skelltum við RaceTech'inu í að framan eftir
að láta það að aftan
»
08.03.2007 04:07:26 / Þórir #259
Já síðustu helgi keyrði ég helling til þessað fara hjóla en hjólaði
ekki svo mikið  byrjaði á að fara í þorlákshöfn og tók eitt moto
þar ætlaði svo bara dóla milli beygja og taka beygjur það gekk ekki
vel áður en ég vissi þá var ég í loftinu með hausinn á leiðinni
ofan í sandinn rankaði svo við mér eftir nokkrar sekundur, hef ekki
rotast í ár eða svo  þannig þetta tók aðeins á hálsinn og sona
bara heppinn að ekki fór verr... á laugardagskvöldinu ákváðum ég
konni og biggi að fara í ólafsvíkina skeltum okkur um 10 leytið
vorum komnir hálf 1 sváfum í rúbbanum svo voru hjólin tekin út um
12 leytið og farið að hjóla en hjóluðum eitthverja 2 tíma þar
»
26.02.2007 14:43:04 / Þórir #259
Nokkur video sem ég fann á netinu held maður geti allavegan
lært að láta ekki mana sig uppí eitthvað af fyrstu
klippunni!!
http://www.youtube.com/watch?v=7ug4To3e0oU
http://www.youtube.com/watch?v=wgYbwiewP3c
http://www.youtube.com/watch?v=0bj3jkGSOi0
»
20.02.2007 22:15:07 / Þórir #259
jáhá þá fór maður í sandvík bæði laugardag og sunnudag, geggjað
veður á laugardeginu fór með tæpa 2 tanka ég og biggi boli fórum
var stuð jói kef var þarna sýna manni vitleysuna maður lét samt
ekki mana sig útí allt ekki búinn að vera jóla mikið uppá síðkastið
en svo fórum við aftur á sunnudeginum og kristó fór með svo var
systir hans jóa kef á fullu vippandi betur en ég var bara hálf
hræddur vorum ekki lengi hjólaði 1 1/2 tíma á mæli! en núna er
maður að fara fá sér pikka þannig ef eikker á pikkup og er að reyna
losna við hann má endilega bjalla í mig og segja mér frá gripnum
»
14.02.2007 12:01:37 / Þórir #259
jæja þá er maður byrjaður að blogga aftur  og æfa byrjaði að boxa
aftur í síðustu viku!! svo ætlar maður að fara mæta í sporthúsið á
morgnana í sona mars april kanski hehe  já en ég biggi boli og
konni koll fórum austur á sólheymasand um helgina, ætluðum
eldsnemma á laugardagsmorguninn en vorum ekki komnir fyrren um 3
leytið austur byrjuðum að hjóla útá sandi svo eftir 20 mín þegar
við vorum komnir niðrí fjöru sáum við hval sem var búinn að reka
uppí fjöru og tókum mynd og læti síðan ætluðum við aftur uppí bíl
konni ætlaði að skipta um skó þá sprengdi biggi 100m frá bílnum og
fjórhjólið sem konni var á bilaði uppvið bíl þannig það var svoldið
fúlt!! en við fórum í vík og fengum okkur burger  þá sáum við að
það var þorrablót þarna í vík um kvöldið og við höfðum bókað
hótelherbergi um morgunin til þess að hjóla báða daganna, þannig
okkur leyst vel á það en svo beiluðu þeir þannig ég fékk ekki miklu
ráðið hehe svo fórum við bara í bæinn  rosa gaman að fara svona
útá land!!
»
18.12.2006 21:33:05 / Þórir #259
shit þá er bara kominn desember.... styttist í jólin fór ekkert að
hjóla þessa helgina búinn að fara alveg 5helgar í röð hugsa ég fór
á jólahlaðborð á föstudaginn með vinnunni hennar lindu svo fórum
við á laugardaginn með vinnunni minni á hótel loftleiðir síðan
fórum við á Fg ball útá seltjarnarnesi það var stuð! en það hefði
verið meira stuð að hjólabáða daganna
»
13.11.2006 11:38:41 / Þórir #259
»
27.10.2006 12:22:26 / Þórir #259
Holaaa  ég skelti mér í BeachRace síðustu helgi
var í öðru sæti á eftir Reyni Jónsyni, hörku keppni svaka erfið
plaströr sem maður þurfti að keyra yfir svo var það árshátíðin var
í þriðja sæti til íslandsmeistara í enduro og motocross, og var
líka nýliði ársins í enduro  svo urðum við liðameistarar í
motocross rosa skemmtilegur dagur  ætla reyna rúlla í Þorlákshöfn
á morgun ef ég verð orðinn hress, strákarnir eru duglegir að bæta
pöllum og alles þegar það er nægur peningur til í sjóðnum þannig
því meira sem við förum og hjólum þarna því betri verðum brautin!!
»
15.10.2006 16:55:50 / Þórir #259
Hooola  langt síðan maður hefur bloggað, en nú er allt að ské
verið að hjóla á fullu og inrétta skúrinn minn og sona  svo er
allt að fara koma í ljós fyrir næsta ár hvernig hjóli og hvaða
flokk maður verður í
»
14.09.2006 18:03:18 / Þórir #259
jæja þá er hjólið líka komið á sölu metið á 720 uppí umboði en hver
veit hvað maður lætur það á. Það er komið RaceTech, Fastway
evolution Standpetalar, Fatbarstýri, ný kúpling skipti bara um
fyrir Sólbrekku, ný plöst og límmiðakitt!
847-2800
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|